Vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur (e.cookies) til að bæta upplifun þína. Lesa stefnu okkar um notkun á vafrakökum.

Audi skýringarmyndbönd

Audi skýringarmyndbönd

Skýringarmyndbönd frá Audi færa þér það sem þú vilt vita, hvort sem þú hefur keypt þér nýjan Audi eða vilt einfaldlega kynnast nýrri tækni. Samandregið og skýrlega framsett efni. Meðal efnisliða eru upplýsinga- og afþreyingarkerfi, Audi connect, stýringar, aðstoðarkerfi, innanrými, hleðsla rafbíla og tengitvinnbíla, og ljósabúnaður.

Sumt myndefni hér er eingöngu til skreytingar, getur verið breytilegt eftir landsvæðum og endurspeglar ekki endilega raunverulegt verð.

Upplýsinga- og afþreyingarkerfi og Audi connect

Með Audi connect verða fjölmargar stafrænar þjónustur aðgengilegar í bílnum. Til dæmis er hægt að skipuleggja fundi, svara skilaboðum með raddstýringu og leita að bílastæðum á áfangastað. Leiðsögukerfi og fjarstýring með myAudi appinu eru líka hluti af Audi connect. Í eftirfarandi myndböndum eru sýnd nokkur dæmi um hvernig hver og ein virkni auðveldar þér lífið.

Virkni og búnaður sem sýnd eru hér eru fáanleg sem viðbót og er verð mismunandi eftir bílgerðum. Myndefninu er ætla að sýna virkni kerfa og getur verið mismunandi eftir bílum og hugbúnaðarútgáfum, fer það eftir bílgerð og búnaðarlínu.

Man with smartphone in front of an Audi e-tron Sportback

Skjáir og stýringar

Í Audi er breitt úrval af möguleikum til að stýra bæði stafrænum og hliðrænum kerfum. Megináherslan er á innbyggða skjái sem birta líka allar upplýsingar um bílinn. Allar mikilvægar stillingar eru innan seilingar fingurgómanna á stýrinu og miðstokknum. Í eftirfarandi myndböndum er fjallað um skjáina og stýringarnar í Audi og sýnt hve aðgengilegt þetta er.

Driver operates the MMI system in the Audi RS Q3

Akstursaðstoðarkerfi

Akstursaðstoðarkerfi Audi eru mikill þægindaauki á löngum ferðum og veita aukið öryggi við hættulegar aðstæður. Til dæmis geta þau hjálpað þér að halda bílnum á réttri akrein, neyðarhemla og greina umferðarmerki til að veita þér upplýsingar um hámarkshraða. Hér er mikil snjalltækni að verki. Eftirfarandi myndbönd sýna hvaða aðstoðarkerfi eru tiltæk og hvernig þau virka.

The Audi RS Q8 in dynamic pass-by

Innanrými

Innanrýmið í Audi er þitt þægindasvæði. Fjölmargir aukahlutir og stillingar eru í boði svo þú getir sérsniðið bílinn að þínum óskum. Þú getur valið um stýri og sæti og þannig hannað innanrýmið að eigin smekk. Eftirfarandi myndbönd sýna hvaða sérmöguleikar eru í boði.

The cockpit of the Audi RS Q8 in red Contour/ambient lighting

Hleðsla

Með Audi e-tron getur þú ekið á rafmagni eingöngu. Einnig býður Audi upp á tengitvinnbíla (PHEV) í TFSI e-models línunni: Hægt er að fara í styttri ferðir á rafmagninu einu saman, án þess að nota sprengivélina. Í báðum tilvikum þarf að hlaða með rafmagni. Þú getur hlaðið bílinn heima eða á vegum úti.

The Audi e-tron at a public charging station

Ljósapakkar

Matrix LED háskerpuljós veita nákvæma lýsingu í hárri upplausn án þess að blinda öðrum vegfarendum sýn. Audio laser-ljós veita aukið öryggi og lýsa tvöfalt lengra en hefðbundin LED háu ljós. OLED afturljós eru afar vel sýnileg og bjóða upp á framsækna lýsingu. Eftirfarandi myndbönd sýna hvaða fleiri tæknimöguleikar eru í boði og hvernig þeir virka.

Rear light of an Audi A7 Sportback
1
Please note: The systems work only within system limits and assist the driver. However, the driver remains responsible for driving the vehicle and is required to be attentive at all times.
2
*** Add your local disclaimer for consumption and emission values ***