Eldsneytisnotkun: kWh / 100 km: 24.2–21.4 (NEDC); 26.2–21.7 (WLTP)
CO₂ losun: g / km: 0
Sökktu þér ofan í spennandi heim rafræns ferðamáta með Audi e-tron. Með allt að 300 kW (408 hö) afl og allt að 441 kílómetra drægni er fyrsti alrafknúni Audi jeppinn sportlegur og öruggur förunautur sem hentar fullkomlega í daglegan akstur á nýjum tímum.
Ríflegt pláss
Hvort sem um er að ræða helgarferð eða lengra ferðalag er Audi e-tron hentugur kostur enda vel búinn öflugri rafhlöðu, snjöllu endurheimtarkerfi og allt að 441 km hámarksdrægni.
Sestu inn og láttu fara vel um þig
Vertu velkomin/n á þitt annað heimili. Ríkulegt rými fyrir höfuð og fætur tryggir þægilega setu og hágæðaefni í innréttingunni ljá upplifuninni meiri lúxus. Njóttu hljóðvistarinnar sem fylgir nær hljóðlausu rafdrifi. Með auðstýrðum snjalltækjum heldur starfræna hversdagslífið áfram eftir að inn í Audi e-tron er komið.
Fyrsta farrými fyrir alla
Allt að þrír farþegar geta haft það notalegt í aftursætinu í Audi e-tron en einnig er hægt að fella sætaröðina niður og stækka farangursrýmið í allt að 1.725 lítra.
Útsýni fyrir framsýna
Ytri sýndarspeglar Audi e-tron er valbúnaður sem býður upp á spánýja og einstaka upplifun. Litlar myndavélar varpa stafrænum myndum á sjö tommu OLED skjái sem gefa ökumanni kristaltært útsýni yfir farartækið fyrir framan, þrátt fyrir vont veður, myrkur og endurkast framljósa.
Audi e-tron S
Audi e-tron 50