
Q8 e-tron
Meiri drægni, hraðari hleðsla og enn skemmtilegri aksturseiginleikar.Helstu tölur um Audi Q8 55 e-tron Quattro
Hleður sig frá 10% upp í 80% á
31
mínútum
með 170 kW DC tengingu
Drægni í blönduðum akstri (WLTP) allt að
600
km
Hámarkshleðsluafköst (DC) allt að
170
kW
Orkunotkun í blönduðum akstri¹ í kW/100 km: 24,4–20,6. Orkunotkun tekur mið af búnaðarstigi bifreiðar en uppgefin gildi miðast við staðalbúnað. Orkunotkun byggir á mælingum samkvæmt samræmdu prófunaraðferðinni (WLTP).
Drægni
Háspennurafhlaða með hleðslugetu upp á 106 kW og hámarksdrægni upp á 582 kílómetra. Þegar rafhlaðan er með lága stöðu getur þú virkjað stillinguna Range (drægni) í MMI-kerfinu.

Tölur fyrir Audi Q8 55 e-tron Quattro
Hámarksafl drifmótora
408
Hö
Heildar togkraftur: 664 Nm.
Hröðun (0-100 km/klst.)
5,6
sek
Meðalhleðsluhraði rafhlöðu allt að
106
kWh
Orkunotkun í blönduðum akstri¹ í kW/100 km: 24,4–20,6; CO₂ útblástur í blönduðum akstri í g/km: 0. Orkunotkun og losun CO2 tekur mið af búnaðarstigi en uppgefin gildi miðast við staðalbúnað. Orkunotkun og losun byggir á mælingum samkvæmt samræmdu prófunaraðferðinni (WLTP).
Rafmagnaður við fyrstu sýn
Audi Q8 e-tron skartar nýju útliti og sérstökum dagljósabúnaði. Quattro lögunin með djarfri axlarlínu nýtur sín vel í málmgráu lakkinu.
Fáguð hönnun innanrýmis
Þú færð meira en bara gott pláss. Vönduð efni í áklæðum og háþróuð stafræn tækni gera sérhverja ferð í Audi Q8 e-tron að upplifun.
Ný akstursupplifun
Hröðun rafmótoranna er nánast hljóðlaus. Betra veggrip og aukinn stöðugleiki með alrafdrifnu drifi. Betri akstur með sveigjanlegri loftfjöðrun og mörgum aðstoðarkerfum. Færanlegur dráttarkrókur er valbúnaður.
Streymdu með innbyggðu Apple Music
Njóttu tónlistarinnar með Apple Music. Þú getur streymt yfir 100 milljónum laga án auglýsinga, beint af innbyggðum skjá í bílnum. Finndu þína uppáhaldstónlist og uppgötvaðu meiri tónlist sem þér líkar. Þú getur stillt á þrjár alþjóðlegar útvarpsstöðvar sem spila vinsælustu popplögin, kántrítónlist og klassíska tónlist. Í aðgangssafninu þínu er gott að leita að tónlistarmönnum, lögum, plötum og lagalistum.

Stafrænar þjónustur
Heimur stafrænna þjónusta í bílum opnast fyrir þér með fjölmörgum tengiþjónustum frá Audi, t.d. nettengdum umferðarupplýsingum sem stöðugt eru uppfærðar og myAudi appinu sem heldur afar vel utan um akstursgögnin.

edition S línan
Uppgötvaðu „edition S line“ með S line ytra byrði, LED inngönguljósum í sérstakri e-tron útgáfu, sem og Audi Singleframe í sama lit og yfirbyggingin. Singleframe ljóskastarar og skyggðar rúður undirstrika framsækinn karakter bílsins. 21 tommu álfelgur eru staðalbúnaður.
Jafn fjölhæfur og lífið
Audi Genuine Accessories gera bílinn þinn einstaklega fjölhæfan. Þú getur hæglega lagað hann að nýjum þörfum með öllum þeim tæknimöguleikum sem hann býr yfir. Aftur og aftur.
Fyrir sjálfbæra framtíð
Audi hugar að sjálfbærri framtíð með ábyrgri nýtingu auðlinda, umhverfisvænni framleiðslu og kolefnishlutlausri afhendingu bíla. Til dæmis notum við græna orku, þar á meðal ljósspennukerfi á þökum framleiðslubygginga okkar, við hitaveitu og framleiðslu rafhlaðna.
