Ríflega 312,600 Audi bifreiðar seldar á fyrsta ársfjórðungi 2011
7.4.2011

Ríflega 312,600 Audi bifreiðar seldar á fyrsta ársfjórðungi 2011

AUDI AG setti á dögunum nýtt sölumet þegar fyrirtækið seldi ríflega 312,600 Audi bifreiðar á fyrsta ársfjórðungi 2011. Í mars nam sala á heimsvísu 125,700 bifreiðum, sem er 13,9% aukning frá árinu á undan. Sala á fyrsta ársfjórðungi er 18,4% aukning frá árinu 2010. Miklar væntingar eru bundnar við sölu á nýjum Audi A6 en fyrstu bílarnar fóru í sölu í Þýskalandi og víðs vegar um Evrópu í byrjun apríl.

Í mars sl. seldust 13,880 eintök af Audi A1 og nærri 31,000 einingar á fyrsta ársfjórðungi en Audi A1 er nær eingöngu fáanlegur í Evrópu. Alls seldi Audi AG nærri 186,500 bifreiðar á fyrsta ársfjórðungi í Evrópu, sem er 14,8% söluaukning frá árinu á undan. Sala í Evrópu í mars nam 79,900 bifreiðum, sem er 11,4% aukning frá árinu 2010.

Söluaukning í Bretlandi fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við árið á undan er 13,7% en alls seldust 34,869 Audi bifreiðar á því tímabili. Söluaukning á Audi bifreiðum í Bandaríkjunum fyrstu þrjá mánuði ársins nam 19,1%.

Audi seldi 64,122 bifreiðar í Kína á fyrsta ársfjórðungi sem er 24,6% aukning frá árinu á undan. Í marsmánuði seldust 23,000 Audi bifreiðar í Kína sem er 17,7% aukning frá árinu 2010.

Til baka