Tengja við:Efnisyfirlit|Leita|Efni|Fótur



Audi A1 fékk nýverið 5 störnur í árekstrarprófun EuroNcap sem er hæsta mögulega einkunn sem gefin er. Stjörnugjöf EuroNcap byggir á niðurstöðum úr stöðluðum öryggisprófunum á fjórum öryggisþáttum: öryggi fullorðinna, öryggi barna, öryggi gangandi vegfarenda og tæknibúnaði. Þættirnir eru metnir í níu aðskildum mælingum. Fjöldi stjarna segir síðan til um niðurstöðu þeirra gagnvart hverjum öryggisþætti og eru mest gefnar fimm stjörnur.
A1 fékk 5 stjörnur fyrir öryggi fullorðinna í árekstri að framan, hlið og að aftan og einnig fyrir öryggi barna og gangandi vegfarenda.
Heitið EuroNcap stendur fyrir the European New Car Assessment Programme“ sem þýða mætti sem nýju evrópsku öryggisprófunina. Fyrstu mælingar fóru fram árið 1997 í þeim tilgangi að veita bílakaupendum áreiðanlegar og aðgengilegar upplýsingar um öryggisbúnað nýrra bíla. Stjörnugjöfin nær til mest seldu bíltegundanna á Evrópumarkaði.