Aflmiklar og sparneytnarVélarnar í Audi Q7

Vélarnar okkar koma mönnum reglulega í opna skjöldu á keppnisbrautum út um allan heim. Og það á ekki síður við um á strætum borganna. Góður árangur í 24 klst Le Mans þolkeppninni er áþreifanlegasta sönnunin fyrir áreiðanleika og langri endingu véla Audi. Audi Q7 færir þér þetta allt í hendur til frjálsrar ráðstöfunar í dagsins önnum.

TDI-vélarnar standa fyrir kraftalega togkúrfu og framúrskarandi sparneytni. Nú eru TDI-vélarnar orðnar sportlegar, þýðgengar og sparneytnar. Valið stendur á milli tveggja TDI-véla, annars vegar 3.0 TDI quattro, 236 hestafla, og hins vegar 4.2 TDI quattro, 335 hestafla. 4.2 TDI quattro er afar afkastamikil og sparneytin dísilvél sem skilar 335 hestöflum og 760 Nm togi. Njótið afls eins og það gerist mest í sportbíl án þess að fórna akstursþægindum og þýðum og hljóðlátum gangi. Upplifið eitt afbrigðið af mörgum í þessari fjölskrúðugu flóru.

Audi Q7 með vistvænu 3,0 TDI-vélinni quattro er búinn nituroxíð-hvarfakút og AdBlue®* tanki, auk hefðbundins hvarfakúts og sótagnasíu. Þetta ásamt fleiri nýjungum, eins og samrásarinnsprautun með 2.000 bara innsprautunarþrýstingi og afkastamikilli afgashringrás, stuðlar að umtalsvert minni losun nituroxíðs. Audi opnar með þessu nýjar víddir fyrir margreyndar TDI-dísilvélar sínar sem hafa sannað kosti beinnar innsprautunar og forþjöpputækni. Nýja vistvæna 3.0 TDI-vélin býr yfir framúrskarandi sparneytni og lágum útblásturstölum. Þá er 3.0 TDI quattro eins og aðrar gerðir Q7 með ríkulegum búnaði og býr yfir miklu afli.

*AdBlue® er umhverfisvænt íblöndunarefni sem er sprautað í örskömmtum frá nituroxíð-hvarfakútnum.

Eldsneytisnotkun og CO2 í útblæstri:

Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 9.9-12.7 l/100 km
CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 234-304 g/km