Ný markmiðVélar í Audi Q5

Í vélum Audi Q5 fer saman mikið afl, þýðleiki og eftirtektarverð sparneytni. Bíllinn er fáanlegur með tveimur aflmiklum gerðum bensínvéla og tveimur afkastamiklum dísilvélum með beinni innsprautun.

Bensínvélarnar eru með ventlalyftukerfi Audi sem stuðlar að minni eldsneytiseyðslu. TDI dísilvélarnar skila miklu togi og eru framúrskarandi sparneytnar. TDI dísilvélarnar eru sportlegar, þýðgengar og hagkvæmar í rekstri. Þær eru með samrásarinnsprautun.

FSI® og TFSI® - Sparneytnar og sportlegar

Framúrskarandi sparneytni, mikið afl. 2.0 TFSI. Audi var fyrstur bílaframleiðenda í heiminum til að hefja fjöldaframleiðslu á bílum með bensínvélum með beinni innsprautun og forþjöppu. TFSI ® vélin tvinnar saman kosti forþjöppunnar og FSI-tækni Audi. Með þessari samþættingu verður til aflmikil vél sem skilar 211 hestöflum. Audi Q5 2.0 TFSI quattro hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst á 7,2 sekúndum.

Rætur FSI® tækni Audi liggja í þátttöku fyrirtækisins í akstursíþróttum og þessi tækni felur í sér einstaka hagkvæmni beinnar innsprautunar. 3,2 l FSI vélin skilar 270 hestöflum. Audi Q5 með þessari vél hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst á aðeins 6,9 sekúndum og hámarkshraðinn er 234 km/klst.

Eldsneytisnotkun og CO2 í útblæstri:
Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 8.4-9.3 l/100 km
CO2 í útblæstir, blandaður akstur: 195-218 g/km

TDI®: sparneytnar og aflmiklar

Einkenni beggja TDI® dísilvélanna í Audi Q5 er yfirmáta þýður gangur, lág vélarhljóð og mikið afl. 2,0 l TDI® vélin skilar 170 hestöflum og býður upp á jafna og spennandi aflaukningu. Hámarkstog er 350 Nm strax við 1.750 snúninga á mínútu. Audi Q5 2,0 TDI quattro hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km hraða á 9,9 sekúndum.

Aflmesta dísilvélin í Audi Q5 er 3,0 l TDI vél sem skilar 240 hestöflum. Þessi aflmikli jeppi hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km á klst á einungis 6,5 sekúndum. Þetta er bíll sem býður upp á frábæra aksturstilfinningu sem er sportleg og krefjandi en um leið afslappandi og þægileg.

Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 6.7-7.5 l/100 km
CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 175-199 g/km