Afl og sparneytniVélarnar í Audi A6

Bensínvélarnar í Audi A6 eru með samrásarinnsprautun og státa af framsækinni hönnun, nægu afli og sparneytni.

Bensínvélarnar í Audi A6

Þeirra öflugust er V8 FSI®. Hún er með 4,2 lítra slagrými, er 257 kW (350 hö.). Hámarks snúningsvægi er 440 Nm við 3.500 sn./mín. Hún skilar Audi A6 á 5,9 sekúndum upp í hundraðið. Eyðsla í blönduðum akstri er þó aðeins 10,2 lítrar á hundraðið.

3ja lítra V6 bensínvélin er líka feikiöflug. Hún er 213 kW (290 hö.). Snúningsvægi er frá 4,850 -   6,800 sn./mín. Hún togar 420 Nm við 2.500 - 4.850 sn./mín. Hröðunin er 5,9 sekúndur. Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri er 9,4 l./100 km.

Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 7.5-10.2 l/100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 174-244 g/km

Dísilvélarnar í Audi A6

Þeirra öflugust er 3.0 TDI® sem er 176 kW (240 hö.) Hún togar 450 Nm við 1.400 - 3.500 sn./mín. Hröðun er 6.6 sekúndur. Þrátt fyrir mikla snerpu er eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri aðeins 6,7 lítrar á hundraðið.

140 kW (190 hö.) sex strokka 2.7 dísilvélin er einnig afar öflug og sparneytin. Eyðsla í blönduðum akstri með 6 gíra handskiptum gírkassa er t.d. aðeins 6,2 lítrar á hundraðið.

Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 5.3-7.1 l/100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 139-189 g/km