Ástríða fyrir afli.Vélar A5 Sportback.

Í hvert sinn sem Audi A5 Sportback er ekið afhjúpast hin raunverulega akstursgeta hans. Hver einasta ökuferð verður spennandi upplifun. Í boði er breitt úrval véla sem allar eru aflmiklar, sparneytnar og einkar togmiklar.

Bensínvélarnar í Audi A5 Sportback

Allar bensínvélarnar eru búnar sömu FSI® tækninni og hefur skilað Audi fjölda sigra í Le Mans þolaksturskeppninni. Ein þeirra er 2.0 TFSI quattro sem skilar 211 hestöflum og er búin forþjöppu sem gerir bílinn enn hraðskreiðari en ella. Með þessari fjögurra strokka vél hraðar A5 Sportback sér í 100 km/klst á 6,6 sekúndum. Hámarkstog er 350 Nm. Nákvæm samræming eldsneytismagns, þrýstings við innsprautun og tímasetningu innsprautunar tryggja hámarks nýtingu hvers einasta bensíndropa.

Dísilvélarnar í Audi A5 Sportback

Dísilvélarnar búa einnig yfir sportlegum eiginleikum og mikilli sparneytni. TDI-tæknin tryggir mikið snúningsvægi og um leið mikla sparneytni. Til að ná þessu fram eru þær með nýjustu kynslóð samrásarinnsprautunarkerfi sem skilar eftirtektarverðu snúningsvægi jafnvel á lágum vélarsnúningi.

Gírskiptingar í boði

Til þess að upplifa allt aflið eru í boði þrjár gerðir gírskiptinga. Fyrstan að telja er 6 gíra handskiptan gírkassa með stuttum skiptingum sem gera aksturinn enn sportlegri. Í öðru lagi er fáanleg þreplaus sjálfskipting eða S tronic tvíkúplandi gírkassi. Hann býður upp á hraðar gírskiptingar sem eru nánast án merkjanlegra tafa. Allar þessir valkostir tryggja um leið framúrskarandi sparneytni. Start-stop búnaðurinn og sparnaðarforritið í aksturstölvunni í handskiptum 2.0 TDI stuðla að einstakri sparneytni í akstri.

Eldsneytiseyðsla og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytiseyðsla, blandaður akstur: 5.2-9.3 l/100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 137-216 g/km