Kjörorðið „Vorsprung durch Technik“ felur í sér tilvísun í nýjustu hátækni sem er kjarni vörumerkisins Audi. Ekki eingöngu á sviði sportlegra eiginleika heldur einnig hvað viðkemur öruggum samgöngumáta til framtíðar. Strax á hugmyndastigi nýrra gerða beitir Audi margvíslegum aðgerðum sem stuðla að aukinni sparneytni framleiðslubíla sinna. Með nýjungum sem frá okkur hafa komið höfum við sett okkar óafmáanlega mark á framleiðslu og hönnun bifreiða.
Start-stop kerfið
Start-stop kerfi (sjálfvirk ræsing og ádrepun)Start-Stop kerfið drepur á bílnum þegar vélin er í lausagangi, t.d. á rauðum umferðarljósum. Hún fer síðan í gang aftur um leið og stigið er á eldsneytisgjöfina. Þetta dregur úr eldsneytisntokun og einnig úr loftmengun, ekki síst í þéttri borgarumferð.
Upplýsingakerfi ökumanns
Á skjá upplýsingakerfis ökumannsins birtast gögn af margvíslegu tagi sem veita ökumanninum stöðugar upplýsingar um virkni bílsins á rauntíma. Innbyggða sparnaðarforritið gefur ökumanninum einnig yfirlit yfir eldsneytisnotkun. Í upplýsingakerfinu eru sérstakar skjámyndir með upplýsingum um eldsneytiseyðslu vegna notkunar á ýmsum fylgibúnaði bílsins. Þar er líka að finna stóran gírskiptivísi og ábendingar um hvernig draga megi úr eldsneytisnotkun.
S tronic
S tronic gírkassinn stuðlar að umtalsverðum eldsneytissparnaði. Í sjálfskiptistillingu framkvæmir stýribúnaðurinn hraðar gírskiptingar og tímasetur þær með tilliti til hámarks sparneytni. Uppbygging S tronic gírkassans er slík að hægt að keyra bílinn í efstu gírum á mjög lágum vélarsnúningi.
Orkuheimt
Í bílnum er orkuheimtarkerfi sem umbreytir hreyfiorku í raforku þegar bíllinn er á siglingu eða þegar stigið er á hemlana. Þegar stigið er á inngjöfina á ný beinir rafgeymirinn orkunni sem þannig varð til aftur til bílsins sem dregur úr álagi á rafalinn og þar með úr eldsneytiseyðslu.