Frelsið í rýminu.Hönnun Audi A5 Sportback.

Að utanverðu hefur A5 Sportback form hins sígilda kúpubaks. Að innanverðu býr hann að miklu innanrými Avant langbaksins. Sportleg hönnun og mikið notagildi hefur sjaldnast átt samleið en hönnun Audi A5 Sportback afsannar að það geti ekki farið saman. A5 Sportback er bíll sem á sér ekki jafnoka.

AA5_D_10063.jpg

Láréttar línur í afturstuðaranum draga fram notagildi bílsins og ósamlit innskot í vindskeiðinni gefa honum enn kraftalegra yfirbragð. Fíngerð framljós og stór loftinntök aðgreina framenda A5 frá öllum öðrum bílum.

Fagurfræðileg nálgun við hönnun bílsins endurspeglast ekki síst í hemlaljósunum sem eru felld inn í afturhlerann. Þau byggjast á LED breiðbandstækni sem býður upp á skemmri viðbragðstíma en hefðbundnar ljósaperur. Þar með fá ökumenn sem aka á eftir bílnum lengri viðbragðstíma þegar bílnum er hemlað. Kraftaleg og þokkafull þaklína Audi A5 Sportback hverfur inn mjúk form afturhlutans og fíngerðir hliðargluggar gefa honum enn kraftmeiri svip. 

En hvers konar bíll er Audi A5 Sportback? Kúpubakur? Langbakur? Hann fellur ekki í neinn skilgreindan flokk heldur skapar hann sinn eigin flokk. Fimm dyra kúpubakur. Allt frá langri og framsveigðri vélarhlífinni að afturenda bílsins endurspeglar hönnunin klassísk form tvennra dyra bíla. Lág þaklínan sveigist með þokka yfir rammalausar framhurðirnar og sportleg hliðarlínan kallast á við stór hjólin. Stutt slútun og mikið hjólhaf gefa bílnum enn kraftalegra yfirbragð.

Dyrnar fjórar á A5 Sportback gefa strax sterka vísbendingu um mikið notagildi bílsins. Allt að fjórir fullorðnir geta notið mikilla þæginda á löngum ferðum í miklu innanrými bílsins.

Óvéfengjanlegt er að A5 Sportback er bíll sem hefur áhrif á skynjun manna. Alveg sama hvernig á málið er litið.