Tengja við:Efnisyfirlit|Leita|Efni|Fótur



Í Audi A5 Coupé eru mjög sérstakar vélar. Það sem einkennir þær allar er mikið snúningsvægi, snögg hröðun, lítil eldsneytisnotkun og þýður og gefandi gangur.
Audi A5 Coupé 2.0 TDI er með samrásarinnsprautun. Vélin skilar 170 hestöflum og 350 Nm togi. Audi A5 Coupé er boðinn með tveimur sex strokka vélum; 2.7 TDI, 190 hestafla með framhjóladrifi og enn aflmeiri 3.0 TDI quattro með sítengdu fjórhjóladrifi. Sex strokka Audi A5 Coupé 3.0 TDI quattro státar af 240 hestöflum og 500 Nm hámarkstogi. Hröðunin er einkar skilvirk og snurðulaus. Bíllinn er 5,9 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst. Niðurstaðan er tafarlaust viðbragð alltaf þegar á þarf að halda og áður óþekkt akstursánægja.
Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 5.1-6.9 l/100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 134-182 g/km
Audi hefur stuðst við FSI-tæknina með mjög góðum árangri í 24 klukkustunda Le Mans þolaksturskeppninni í mörg ár. Allar bensínvélar Audi A5 Coupé byggja á FSI-tækninni og eru auk þess með nýju ventlastýrikerfi Audi. Kostir FSI-tækninnar eru áþreifanlegir í Audi A5 Coupé. Með beinu innsprautunarferli brennur eldsneytið hraðar og með skilvirkari hætti. Ventlastýrikerfi Audi dregur úr innra viðnámi í vélinni og afraksturinn er framúrskarandi afkastageta. Með 3.2 FSI vélinni hraðar bíllinn sér t.a.m. úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst á einungis 6,1 sekúndu.
2.0 TFSI vélarnar tvinna saman kosti þessarar tækni og forþjöppu sem leiðir til enn meiri aflaukningar. Þær bjóða upp á snögga hröðun og mikið tog við nánast allan snúningshraða. 2.0 TFSI vélarnar eru fáanlegar með tvenns konar aflúttaki; annars vegar 180 hestafla og hins vegar 211 hestafla. Báðar gerðirnar eru fáanlegar með sportlegum sex gíra beinskiptum gírkassa eða multitronic þreplausri sjálfskiptingu. Aflmikla 211 hestafla 2.0 TFSI vélin er líka fáanleg með sítengdu quattro fjórhjóladrifi.
Eldsneytiseyðsla og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytiseyðsla, blandaður akstur: 6.4-9.2 l/100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 149-213 g/km