Tengja við:Efnisyfirlit|Leita|Efni|Fótur



Vélarnar í Audi A4 státa af framsækinni hönnun, nægu afli og mikilli sparneytni. Bensínvélarnar eru allar með FSI-tækni sem er sérstaklega skilvirk, bein innsprautunartækni. TDI dísilvélarnar eru með uppfærðri gerð samrásarinnsprautunar og eru búnar sótagnasíum.


Fjöldi togmikilla, hátæknivæddra dísilvéla með fjórum eða sex strokkum eru fáanlegar í A4. Þar er fyrst að nefna 120 hestafla 2.0 TDI vélina með 290 Nm hámarkstogi. Þar fyrir ofan kemur 2.0 TDI e sem skilar 135 hestöflum og 320 Nm togi. Loks er að nefna 3.0 TDI quattro sem skilar 236 hestöflum og 500 Nm togi. 3.0 TDI quattro stallbakurinn með 6 gíra beinskiptingu hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km hraða á 6,1 sekúndu. Hámarkshraðinn er takmarkaður við 250 km/klst.
Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 4.6-6.9 l/100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 119-182 g/km


Bensínvélar A4 eru búnar hinni margreyndu og rómuðu FSI-tækni sem hefur sannað gildi sitt í akstursíþróttum. Í FSI-vélum er eldsneytinu sprautað beint inn í brunahólfið í nákvæmlega réttu magni. Þetta tryggir skilvirkari bruna og betri nýtingu á bensíninu. Audi var fyrsti bílaframleiðandi í heimi til að nýta sér kosti beinnar bensíninnsprautunar með forþjöpputækni í fjöldaframleiddum bílum. Í TFSI-vélum leggst FSI-tæknin á sveif með forþjöpputækninni og afraksturinn verður enn meira afl. Úrval bensínvéla fyrir A4 byrjar með 120 hestafla 1.8 TFSI-vélinni og sú aflmesta er 260 hestafla 3.2 TFSI-vélin.
2.0 TFSI-vélin vekur athygli fyrir mikið tog. Hámarkstog er 320 Nm við aðeins 1.500 snúninga á mínútu - þetta eru traustvekjandi tölur sem tryggja mikla akstursánægju. Vélin er ennfremur búin ventlastýrikerfi Audi. Breytilegur opnunartími ventla stuðlar ekki einvörðungu að minni eldsneytiseyðslu heldur einnig að mun meiri akstursánægju.
Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytisnotkun, blandaður akstur: 6.4-9.3 l/100 km
CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 149-215 g/km