Audi A4 SaloonÁvallt sparneytinn

Kjörorðið „Vorsprung durch Technik“ felur í sér tilvísun í nýjustu hátækni sem er kjarni vörumerkisins Audi. Ekki eingöngu á sviði sportlegra eiginleika heldur einnig hvað viðkemur öruggum samgöngumáta til framtíðar. Strax á hugmyndastigi nýrra gerða beitir Audi margvíslegum aðgerðum sem stuðla að aukinni sparneytni framleiðslubíla sinna. Með nýjungum sem frá okkur hafa komið höfum við sett okkar óafmáanlega mark á framleiðslu og hönnun bifreiða.

  • Start-stop system
  • Start-stop system

    Start-stop-kerfið drepur á vélinni þegar bíllinn er kyrrstæður og þannig dregur kerfið úr eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings. Sem dæmi um þetta drepur búnaðurinn á vélinni þegar ökumaður stöðvar bílinn á umferðarljósum, setur bílinn í hlutlausan gír og stígur af kúplingunni.
  • Aksturstölva
  • Aksturstölva með innbyggðu sparneytnikerfi

    Fullkomin aksturstölva með innbyggðu sparneytnikerfi er tengd upplýsingakerfi ökumanns. Hún birtir upplýsingar um eldsneytisnotkun og stingur upp á leiðum til að draga úr eldsneytiseyðslu, m.a. með því að sýna hvenær ökumaður á að skipta um gír. Einnig sýnir hún hvort kveikt sé á loftræstikerfi bifreiðarinnar eða afþýðingarbúnaði á afturrúðunni og hversu mikil áhrif það hefur á eldsneytiseyðslu.
  • S tronic
  • S tronic

    S tronic gírkassinn stuðlar að umtalsverðum eldsneytissparnaði. Í sjálfskiptivali stýrir stjórnbúnaðurinn skjótum gírskiptingum og tímasetur þær með tilliti til hámarks sparneytni. S tronic ræður yfir afar breiðu gírhlutfalli sem gerir akstur mögulegan í efstu gírum á einkar lágum vélarsnúningi.
  • Orkuheimt
  • Orkuheimt

    Búnaður til orkuheimtar umbreytir hreyfiafli í raforku þegar bíllinn er í átakalausu skriði eða þegar honum er hemlað. Þegar bílnum er hraðað á ný beinir rafgeymirinn endurheimtri orku aftur til bílsins. Þannig er dregið dregur úr álagi á rafalinn og fram næst eldsneytissparnaður.
  • The Audi A4 2.0 TDI e