Tengja við:Efnisyfirlit|Leita|Efni|Fótur



Samtals eru fáanlegar níu mismunandi gerðir véla í Audi A3 Sportback, þar með taldar sjö hátæknivæddar, fjögurra strokka vélar með beinni innsprautun og forþjöpputækni. Helstu styrkleikar TFSI®- og TDI®-vélanna eru mikið drifafl, fágun og sparneytni.
Þú þarft aflmikla vél til þess að komast leiðar þinnar á sem skemmstum tíma. Til þess að halda forskotinu þarftu vél sem byggir á snjöllum lausnum með tilliti til orkunýtni. TFSI®- og TDI®-vélarnar fyrir Audi A3 Sportback bjóða upp á hvort tveggja, þ.e. framúrskarandi afl ásamt mestu hugsanlegu sparneytni.
Afl TFSI®-vélanna þriggja liggur á bilinu 125 hestöfl í Audi A3 Sportback 1.4 TFSI og 200 hestöfl í Audi A3 Sportback 2.0 TFSI quattro. Staðalbúnaður með 1.4 TFSI®-vélinni er stop-start-kerfi og hverfilforþjappa. Slagrými vélarinnar er eingöngu 1.390 rúmsentimetrar en hún skilar samt 200 Nm togi. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri er eingöngu 5,8* l/100 km. 2.0 TFSI®-vélin á uppruna að rekja til akstursíþróttanna. Hún skilar 200 hestöflum og hámarkstogið er 280 Nm frá 1.700 til 5.000 snúninga á mínútu. Niðurstaðan er sú að Audi A3 Sportback 2.0 TFSI quattro hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst á 6,7 sekúndum.
Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri í A3 Sportback:
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri: 5.8-7.6 l./100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 137-176 gr./km
*með S tronic®
Afl dísilvélanna liggur á bilinu 90 hestöfl í 1.6 TDI® og 170 hestöfl í 2.0 TDI®. Fremstur meðal jafningja hvað varðar sparneytni er 1.6 TDI® sem skilar 105 hestöflum meðan eldsneytisnotkunin í blönduðum akstri er einungis 4,2 lítrar á hverja 100 km. 1.6 TDI®-vélin er búin skynrænni samrásarinnsprautun (common-rail) og státar af lægsta gildi koltvísýringslosunar allra gerðanna, 112 gr/km.
Eldsneytisnotkun og magn CO2 í útblæstri:
Eldnsneytisnotkun í blönduðum akstri: 4.2-5.7 l./100 km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 112-149 gr./km