Kjörorðið „Vorsprung durch Technik“ felur í sér tilvísun í nýjustu hátækni sem er kjarni vörumerkisins Audi. Ekki eingöngu á sviði sportlegra eiginleika heldur einnig hvað viðkemur öruggum samgöngumáta til framtíðar. Strax á hugmyndastigi nýrra gerða beitir Audi margvíslegum aðgerðum sem stuðla að aukinni sparneytni framleiðslubíla sinna. Með nýjungum sem frá okkur hafa komið höfum við sett okkar óafmáanlega mark á framleiðslu og hönnun bifreiða.
Start-stop kerfi
Start-stop-kerfið drepur á vélinni þegar bíllinn er kyrrstæður og þannig dregur kerfið úr eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings. Sem dæmi um þetta drepur búnaðurinn á vélinni þegar ökumaður stöðvar bílinn á umferðarljósum, setur bílinn í hlutlausan gír og stígur af kúplingunni.
S tronic
S tronic gírkassinn stuðlar að umtalsverðum eldsneytissparnaði. Í sjálfskiptivali stýrir stjórnbúnaðurinn skjótum gírskiptingum og tímasetur þær með tilliti til hámarks sparneytni. S tronic ræður yfir afar breiðu gírhlutfalli sem gerir akstur mögulegan í efstu gírum á einkar lágum vélarsnúningi.
Orkuheimt
Búnaður til orkuheimtar umbreytir hreyfiafli í raforku þegar bíllinn er í átakalausu skriði eða þegar honum er hemlað. Þegar bílnum er hraðað á ný beinir rafgeymirinn endurheimtri orku aftur til bílsins. Þannig er dregið dregur úr álagi á rafalinn og fram næst eldsneytissparnaður.
Gírskiptivísir
Gírskiptivísirinn hjálpar ökumanni að aka alltaf á hagkvæmasta vélarsnúningi. Skjár í upplýsingakerfi ökumanns sýnir hvenær ráðlegt er að skipta upp um gír.