Öflugar og sparneytnarTFSI® vélarnar í Audi A1

Vélarnar í Audi A1 státa af hinni rómuðu TFSI® tækni en Audi var fyrsti bílaframleiðandi í heimi til að nýta sér tækni beinnar bensíninnsprautunar með forþjöpputækni í fjöldaframleiddum bílum.

1.2 TFSI vélin skilar 63 kW (86 hö.). Eldsneytiseyðsla er aðeins 5.1 l/100 km og hármakstog 160 Nm við 1,500 sn./mín.

Sportleg 1.4 TFSI vélin skilar 90 kW (122 hö.) og er hönnuð með hámarksafl og sparneytni í huga. Hámarkstog er 200 Nm við 1,500 sn./mín.

Öflugasta vélin, 1.4 TFSI, er 136 kW (185 hö.) og skilar A1 í hundraðið á 6,9 sekúndum. Hámarkstog er 250 Nm. Vélin eyðir 5,9 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Magn CO2 í útblæstri er 139 gr./km.

Allar vélarnar eru með sjálfvirkum búnaði sm drepur á vélinni þegar stöðvað er og ræsir hana aftur þegar aka skal af stað. Þær eru auk þess allar með túrbínu og beinni strokkinnsprautun.

Þegar bíllinn rennur (fríhjólar) hleðst rafmagn inn á rafgeyminn. Það þýðir minna álag á rafalinn og þar með minni eldsneytiseyðslu. Þegar bíllinn er ræstur kaldur streymir enginn kælivökvi um vélina í fyrstu. Þannig hitnar olían fyrr og vélin er fljótari að ná upp fullum smurningi á slitfleti sína. Þetta bæði dregur úr kaldræsisliti og eldsneytiseyðslu.
 

Eldsneytiseyðsla og magn CO2 í útblæstri:
Eldsneytiseyðsla, blandaður akstur: 3,9-5,9 l./100km
Magn CO2 í útblæstri, blandaður akstur: 103-139 g/km