Audi A1Ávallt sparneytinn

Allar vélarnar í Audi A1 eru með túrbínu og beinni strokkinnsprautun. Þær eru auk þess með sjálfvirkum búnaði sem drepur á vélinni þegar stöðvað er og ræsir hana aftur þegar aka skal af stað.

Hleðslurafmagn

Þegar bíllinn rennur (fríhjólar) hleðst rafmagn inn á rafgeyminn. Það þýðir minna álag á rafalinn og þar með minni eldsneytiseyðslu. Þegar bíllinn er ræstur kaldur streymir enginn kælivökvi um vélina í fyrstu. Þannig hitnar olían fyrr og vélin er fljótari að ná upp fullum smurningi á slitfleti sína. Þetta bæði dregur úr kaldræsisliti og eldsneytiseyðslu.

Start-stop kerfi (sjálfvirk ræsing og ádrepun)

Start-Stop kerfið drepur á bílnum þegar vélin er í lausagangi, t.d. á rauðum umferðarljósum. Hún fer síðan í gang aftur um leið og stigið er á eldsneytisgjöfina. Þetta dregur úr eldsneytisntokun og einnig úr loftmengun, ekki síst í þéttri borgarumferð.

S tronic

Akstur bifreiðar snýst alfarið um að sjá og hugsa fram í tímann og það á einnig við um virkni S tronic® gírkassans með tvítengsli, sem vinnur eins og tvö samhæfð kerfi. Annað kerfið tengir saman gírhjólin með oddatölur, en hitt tengir gírhjólin með jafnar tölur, þannig að þegar hraði bílsins er aukinn í öðrum gír, er þriðji gír þegar tilbúinn að taka við. Og þegar skipt er í þriðja gír er fjórði gír einnig kominn í samband. Þessi nýtækni felst í tveimur tengslum á aflrás gírkassans, sem gerir ökumanni kleift að skipta eldsnöggt og hnökralaust um gír, án þess að aflflutningur til veghjólanna rofni.

Fullkomin aksturstölva

Aksturstölva (driver information system) með innbyggðu sparneytnikerfi er tengd upplýsingakerfi ökumanns. Hún birtir upplýsingar um eldsneytisnotkun og stingur upp á leiðum til að draga úr eldsneytiseyðslu, m.a. með því að sýna hvenær ökumaður á að skipta um gír. Einnig sýnir hún hvort kveikt sé á loftræstikerfi bifreiðarinnar eða afþýðingarbúnaði á afturrúðunni og hversu mikil áhrif það hefur á eldsneytiseyðslu.