Tengja við:Efnisyfirlit|Leita|Efni|Fótur



Flash spilara vantar. Vinsamlegast sæktu nýjustu
útgáfu
Ókeypis niðurhal
Audi A1 er með tiltölulega háa vegfríahæð og mjög einkennandi og kraflegar línur. Hann er yngsti og léttasti meðlimurinn í Audi fjölskyldunni.
Audi A1 er 3ja dyra hlaðbakur. Hann er 395 sm langur, 174 sm breiður og 142 sm hár. Hjólahafið eða lengd á milli hjóla er 247 sm.
Framendinn sver sig í ættina en hefur þó ýmis séreinkenni ef grannt er skoðað. Hið sama má segja um aðalljósin sem státa af mjög aðgreinanlegum og sterklegum svip. Dagljósabúnaðurinn er staðalbúnaður eins og í öllum öðrum Audi gerðum. Bi Xenon plus ljósabúnaður er valbúnaður.
Frá hlið gefur stigrísandi afturlínan bílnum sérstakan svip og afturhlutinn gefur bílnum kröftugt útlit. Í A1 er ríflegt farangursými sem er sérstakt fyrir bíl af þessari stærðargráðu.