Vorsprung durch TechnikUmhverfisvernd hjá Audi

Löng hefð fyrir umhyggju gagnvart umhverfinu - Yfirlýst markmið Audi er að bjóða öllum viðskiptavinum sínum upp á akstursánægju og sjálfbærni í samgöngum. Árangur okkar á þessu sviði er augljós - fjórir, samtvinnaðir hringirnir í merki Audi standa fyrir sportlega eiginleika, tilfinningaríka útlitshönnun, gæði og umhverfishyggju.

Samfélagsleg ábyrgð kallar á að dregið sé úr koltvísýringslosun

Kjörorðið Vorsprung durch Technik felur í sér skuldbindingu. Skuldbindingin lýtur ekki síst að koltvísýringslosun. Af þeim sökum fylgir Audi yfirgripsmikilli loftslagsáætlun sem nær til allra deilda fyrirtækisins. Í loftslagsáætluninni birtist skuldbinding fyrirtækisins gagnvart samfélaginu og umhverfinu. Áætlunin er þess vegna órjúfanlegur hluti af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Við framleiðum okkar vörur á grundvelli skilvirks einingakerfis. Með þessari heildrænu nálgun eru allir þættir teknir inn í myndina sem hafa áhrif á koltvísýringslosun, þar með talin hönnun véla og drifrása, hönnun og tækni við gerð yfirbygginga, loftaflsfræðileg hönnun og rafeindakerfi.

Umhverfisskýrsla Audi

Í Umhverfisskýrslunni birtir Audi afrakstur þeirra aðgerða sem miða að því að skapa sjálfbæra framtíð. Fyrirtækið hefur enn fremur tekið fyrstu skrefin í átt að skipulagðri skýrslugerð um sjálfbærni. Af þessu leiðir að í síðustu Umhverfisskýrslu fyrirtækisins er einnig farið inn á samfélagsleg málefni, eins og til dæmis starfsöryggi og heilsuvernd, auk málefna sem tengjast beint viðskiptalegum sjónarmiðum eins og upplýsingar um markaðstækifæri fyrir ökutæki með óhefðbundna orkugjafa.