11.8.2009
Bayern Munchen sigraði Evrópumeistara Manchester United á dramatískan hátt í úrslitaleik fyrstu Audi bikarkeppninnar, sem háð var í lok júlí. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 0-0 en þýska liðið hafi betur í vítaspyrnukeppninni með því að skora 7 mörk gegn 6 mörkum andstæðinganna. Fyrir vikið lyftu liðsmenn Bayern Munchen í lok leiks 60 sm háum Audi bikarnum sem bætist í fjölbreytt bikarasafn þýsku meistaranna.
Leikurinn fór fram á Allianz Arena leikvanginum og var uppselt á hann. Michael Rensing, markvörður Bayern Munchen, var hetja liðsins þegar hann varði tvær vítaspyrnurnur.
Alls fylgdust um 130 þúsund manns með Audi bikarmótinu sem stóð yfir í tvo daga. Mótið var hápunkturinn í 100 ára afmælishátíð Audi. Fjórum af fræknustu knattspyrnuliðum heims var boðið á mótið. Í leik um þriðja sætið virtist allt stefna í sigur AC Milan gegn Boca Juniors frá Argentínu. Silva náði forystunni fyrir AC Milan á 27. mínútu en þremur mínútum fyrir leikslok jafnaði Viatri fyrir Boca Juniors. Argentínumennirnir höfðu síðan betur í vítaspyrnukeppni gegn Ronaldinho og félögum í AC Milan og tryggðu sér þar með þriðja sætið.
Dómnefnd sem skipuð var yfirmönnum VW, Audi og DFB Sports valdi Gennaro Gattuso verðmætasta leikmann keppninnar.