AA5_C_10004AA5_C_10005

Fleiri fréttir
á audi.is

Audi seldi um 77.800 bíla í janúar sem er um 39% söluaukning miðað við sama mánuð í fyrra. Í síðasta mánuði seldust 16.798 Audi bílar í Kína sem er meira en tvöfalt meiri sala þar í landi frá því í janúar 2009. Sala í Bandaríkjunum jókst í mánuðinum um 37,9% og fór í 6.510 bíla. Sala í Evrópu, að Þýskalandi frátöldu, jókst um 23%. Þar seldust 33.300 bílar í samanburði við 27.020 í janúar 2009.
Audi quattro cup golfmótið fór fram um síðustu helgi, sjöunda árið í röð. Mikil og góð skráning var á meðal Audi eigenda og voru 116 Audi eigendur skráðir til leiks og komust færri að en vildu. Mótið fór fram á Urriðavelli í Garðabæ í ágætu veðri en nokkuð hvasst var á köflum.

Tvö lið voru jöfn með 37 punkta að loknu móti og var því farið í reglubækur Audi og þar með sigraði Audieigandinn Eiríkur Bragason og félagi hans Gísli Hjálmtýsson. Eiríkur hefur verið dyggur viðskiptavinur HEKLU í áratugi og lengi ekið um á Audi. Munu þeir félagar því keppa fyrir hönd Íslands á Audi quattro cup world Final sem fram fer þann 14.-18. desember næstkomandi í Sydney í Ástralíu á New South Wales Golf Club. Óskum við þeim góðrar ferðar um leið og við þökkum þeim og öðrum kylfingum fyrir þátttökuna.
Bayern Munchen sigraði Evrópumeistara Manchester United á dramatískan hátt í úrslitaleik fyrstu Audi bikarkeppninnar, sem háð var í lok júlí. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 0-0 en þýska liðið hafi betur í vítaspyrnukeppninni með því að skora 7 mörk gegn 6 mörkum andstæðinganna. Fyrir vikið lyftu liðsmenn Bayern Munchen í lok leiks 60 sm háum Audi bikarnum sem bætist í fjölbreytt bikarasafn þýsku meistaranna.

Leikurinn fór fram á Allianz Arena leikvanginum og var uppselt á hann. Michael Rensing, markvörður Bayern Munchen, var hetja liðsins þegar hann varði tvær vítaspyrnurnur.

Alls fylgdust um 130 þúsund manns með Audi bikarmótinu sem stóð yfir í tvo daga. Mótið var hápunkturinn í 100 ára afmælishátíð Audi. Fjórum af fræknustu knattspyrnuliðum heims var boðið á mótið. Í leik um þriðja sætið virtist allt stefna í sigur AC Milan gegn Boca Juniors frá Argentínu. Silva náði forystunni fyrir AC Milan á 27. mínútu en þremur mínútum fyrir leikslok jafnaði Viatri fyrir Boca Juniors. Argentínumennirnir höfðu síðan betur í vítaspyrnukeppni gegn Ronaldinho og félögum í AC Milan og tryggðu sér þar með þriðja sætið.

Dómnefnd sem skipuð var yfirmönnum VW, Audi og DFB Sports valdi Gennaro Gattuso verðmætasta leikmann keppninnar.
Undanfarin misseri hefur færst í aukana að bílaframleiðendur velji Ísland sem vettvang kynninga á nýjum bílum. Flestir muna risakynningu sem fram fór hér í september síðastliðnum þegar vel á annað þúsund blaðamenn heimsóttu Ísland við frumkynningu á sjöttu kynslóð Volkswagen Golf.

Í sl. viku hófst hér á landi kynning á vegum Audi lúxusbílaframleiðandans þegar fyrstu hópar franskra blaðamanna koma til landsins og reynsluóku nýjum Audi bifreiðum. Hér var um að ræða frumkynningu á nýjum Audi A5 Cabriolet, Audi S5 og nýjum fjórhjóladrifnum Audi A4 Allroad. Af því tilefni voru 10 mjög vel búnar bifreiðar af þessum gerðum fluttar til landsins. Á fimmta tug blaðamanna komu til landsins af þessum sökum en kynninginunni lauk 15. júní.

Þetta er annað árið í röð sem Audi í Frakklandi kemur hér með hópa. Í fyrra komu þeir hingað með umboðsmenn sína en nú völdu þeir að kynna bílana hér á landi.

Þetta er hin besta Íslandskynning, því í greinum sem fylgja slíkri umfjöllun er áfangastaðnum yfirleitt gerð mjög góð skil í máli og myndum. Þess má geta að á meðal fjölmiðla sem heimsóttu Ísland að þessu sinni er TF1 sem er bæði vinsælasta sjónvarpsstöð Frakklands og Evrópu.


Audi AG setti enn eitt sölumetið á síðasta ári þegar fyrirtækið rauf milljón bifreiða múrinn í fyrsta sinn. Alls seldust 1,003,400 Audi bifreiðar á síðasta ári sem er 4,1% söluaukning frá árinu á undan.
Sala á Audi Q5 og A4 í desembermánuði í fyrra var 17,4% meiri en á sama tímabili 2007.

Stöðug aukning hefur verið í sölu Audi bifreiða sl. 13 ár. Söluaukning í Vestur-Evrópu í desember 2008 var 22,7% miðað við sama tímabil árið 2007. Söluaukning í Asíu á sama tímabili var 15,6%.

Í Bandaríkjunum, sem er þriðji stærsti útflutningsmarkaður Audi bifreiða, dróst sala á árinu 2008 saman um 6,1% miðað við árið 2007 og sala í desembermánuði var 9,3 minni en í desember 2007.

Rupert Stadler, stjórnarformaður Audi AG, segir fyrirtækið ætla að nýta sér þennan meðbyr í því erfiða árferði sem nú við blasir. „Við erum með háleit framtíðarmarkmið og viljum gera Audi að
fyrsta kosti í flokki lúxusbifreiða á heimsvísu."