Eitt atriði sem verkfræðingar og hönnuðir Audi gleyma aldrei við sín störf er vörumerki Audi; einstæð akstursupplifun. Akstursupplifun er það sem gengið er út frá og um leið sá eiginleiki sem verður að standa óhaggaður þótt hrifnæmi hönnuða og nýjungar verkfræðinga í háþróaðri tækni sæki stöðugt á. Þetta er útgangspunktur Audi A5 sem nýrrar bílgerðar sem brýtur nýtt blað í framleiðslulínu Audi. Kerfisbundið er fylgt eftir ströngum lögmálum hönnunar og tækni í bílnum og hann vekur strax upp sterka löngun ökumanns að setjast undir stýrið.