Fjármögnunarleiðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Fjármögnunarleiðir fyrir einstaklinga
Fjármögnunarfyrirtæki og tryggingarfélög aðstoða kaupendur við að fjármagna kaup á nýjum bíl. Fjármögnun getur numið allt að 100% af kaupverði bifreiðar. Þær leiðir sem standa einstaklingum til boða eru bílalán eða bílasamningar. Kaupandi er skráður eigandi bifreiðar ef um bílalán er að ræða. Tekið er veð í bifreið og er bifreiðin húftryggð á lánstímanum. Fjármögnunarfyrirtækið er skráður eigandi bifreiðar ef um bílasamning er að ræða en lántakandi er skráður umráðamaður bifreiðar á samningstíma.
Ýmsar fjármögnunarleiðir standa fyrirtækjum og rekstraraðilum til boða. Fjármögnun getur numið allt að 100% af kaupverði bifreiðar. Þær fjármögnunarleiðir sem standa atvinnurekendum til boða eru bílalán, kaupleiga, eignaleiga og rekstrarleiga.